Legal notice

Skilmálar

Almennt

Seljandinn, klaran.is tekur við pöntun þegar staðfesting um greiðslu hefur borist. Þegar staðfesting á pöntun og greiðslu hefur borist, sendir seljandinn kaupanda staðfestingu á netfang kaupanda og er þar með kominn samningur á milli kaupanda og seljanda, þ.e. klaran.is.

 

Afhending

Allar vörur klaran.is eru til á lager nema annað sé tekið fram við birtingu vörunar.  Að jafnaði tekur afgreiðsla pantana 1-2 virka daga eftir að staðfesting um greiðslu berst. Allar vörur sendar með Íslandspósti, 1- 2 virkum dögum eftir afgreiðslu pantana, nema ef um annað sé rætt eða eitthvað óvænt komi uppá.

 

Verð

Öll verð eru uppgefin í íslenskum krónum.  Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.  Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara en verð eru almennt breytileg vegna verðbreytinga seljanda og birgja, gengisbreytinga og gjaldskrár sendingaraðila.  Það verð gildir samt sem áður er fram kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni. 

Heildarkostnaður við kaup á vöru kemur fram við hverja vöru fyrir sig, að undanskildum sendingarkostnaði sem bætist við í pöntunarferlinu.  Áður en kaupandi staðfestir pöntunina endanlega og greiðir, þá kemur í ljós heildarverð með sendingarkostnaði.  

Verð á sendingarkostnað getur verið breytilegt, það reiknast skv. gjaldskrá Íslandspósts hf.

 

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við vöru áður en gengið er frá greiðslu.  Sendingarkostnaður á pökkum, sem eru póstlagðir sem bréf (EINGÖNGU VÖRUR SEM KOMAST Í LÍTIL UMSLÖG) og komast inn um bréfalúgur, er 425 krónur (fyrir bréf undir 250 gr), (þeir eru ótryggði og órekjanlegir) en ef pantaðir eru 2 eða fleiri pakkar af slíkum vörum, þarf að senda þá sem pakka og kemur pakka sendingargjald, því þá komast þeir ekki í lúgu. Sendingarkostnaður er nú kr 1.430 á pakka (undir 2 kg) og er sá pakki rekjanlegur og í ábyrgð á vegum Íslandspósts hf. Einnig er Hægt að fá pakka keyrðan heim að dyrum, það kostar kr 1.990.

Einning eru þeir staðir á landinu, þar sem eingöngu hægt er að senda pakka með Landfluttningum og þá er sendingarkostnaðurinn kr 1.950 (fyrir pakka undir 2 kg).

Kostnaður við sendingarkostnaðinn getur breyst án fyrirvara, hann er í samræmi við gjaldskrá Íslandspósts hf.  Ábyrgðir og flutningsskilmálar Íslandspósts gilda um afhendingu vörunnar. 

 

Vörurnar

Upplýsingar um vörur eru settar fram eftir bestu vitund seljanda hverju sinni. Í framsetningu upplýsinga gerir seljandi fyrirvara um bilanir, birtingar- og/eða innsláttarvillur á myndum og texta. Sé vara uppseld kemur það fram á síðunni eða vara er tekin úr birtingu þangað til annað kemur í ljós.  Ef klaran.is selur fyrir mistök vöru sem er ekki til á lager, þá er haft samband við kaupanda, honum boðin endurgreiðsla, að fella niður pöntun eða breyta pöntuninni.  

 

Greiðslur 

Hægt er að greiða pantanir með debitkorti, kreditkorti, netgíró eða bankamillifærslu.

 

 

Greiðslumöguleikar – Öruggt netumhverfi

Öll vinnsla greiðslukortaupplýsinga fer fram í öruggri greiðslugátt Kortaþjónustunnar.  Klaran.is geymir engin kortanúmer. 

 

Skila- og endurgreiðsluréttur

Samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga getur neytandi fallið frá samningi um kaup á vöru yfir netið innan 14 daga frá pöntun með skriflegri yfirlýsingu.  Ónotaðri vöru í upprunalegum umbúðum má skila gegn endurgreiðslu á klaran.is, innan 14 daga. Þó er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur og Kaupandi ber einnig að greiða þann sendingarkostnað sem til fellur við skil á vörunni.  Kvittun þarf að fylgja með vörunni og framvísa þarf vörunni í því ástandi sem hún var við kaup og í upprunalegum umbúðum, með innsigli.  En ef vara er gölluð greiðir klaran.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vörunni og endurgreiðir vöruna að fullu. Nauðsynlegt er að senda tölvupóst og skýra frá skilum vöru og einnig ef um gallaða vöru er að ræða, áður en hún er send í pósti.  Þó ber nefna að þar sem klaran.is verslar með umhverfisvænar vörur og náttúrulegar vörur sem eru oft viðkvæmar, þá verður það að vera matsatriði þegar þær eru búnar að fara manna á milli.

 

Trúnaður og persónuupplýsingar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskipti sín við Klaran.is. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

ÞESSI SAMNINGUR ER Í SAMRÆMI VIÐ ÍSLENSK LÖG

 

 

 

Fyrir hönd klaran.is 

Susan Wilson

 

www.klaran.is ehf
Kt: 571120 - 2670
klaran@klaran.is
sími: 699 8607
110 Reykjavík